-

Færsluflokkur: Bloggar

Trúverðugleiki = 0

Núna sést berlega hvers vegna þarf að skipta um fólk í fjármálaeftirlitinu.  Almenningur mun ekki treysta neinu sem frá þeim kemur því þau eru með buxurnar á hælunum sjálf.  Þau eru vanhæf til að meta nokkuð sem kemur við fjármálaeftirliti því trúverðugleikinn er enginn.  Vanhæfni virðist þó vera vinnuregla hjá stjórnvöldum þegar kemur að því að skipa í stöður og rannsaka spillingu þannig að ég get ekki sagt að nokkuð komi mér á óvart.

Ég tel mig sjálfan ekki færan til að meta hvort Birna sé með hreina samvisku eða ekki, en ég treysti samt sem áður engu sem kemur frá fjármálaeftirlitinu.

 


mbl.is FME aðhefst ekki vegna viðskipta Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn kaupi gull hið snarasta

Í þessari lausafjárkrísu sem gengið hefur um heiminn hefur dollarinn hækkað í verði sökum mikillar eftirspurnar (því stórt hlutfall af lánunum sem illa gengur að borga er í dollurum). Þetta bailout í Bandaríkjunum er bara peningaprentun og það þýðir að raunvirði hvers dollars minnkar eftir því sem meira er prentað (og einkavinir seðlabankastjórnenda þar fá peninga gefins á kostnað skattgreiðenda og þeirra sem eiga dollara fyrir).  Þegar eftirspurn eftir dollurum minnkar er því spáð að dollarinn taki stórt fall og það er einmitt ástæðan fyrir því að gull hækkar.....gagnvart dollar.

Fréttin er því í rauninni: dollarinn er að fara til fjandans eða eins og maður myndi segja á ensku: Dollar is going ISK

Því er nú ráð að losa út prump-pappír sem fólk fer að missa trúna á bráðlega (dollar) og skipta honum út fyrir raunveruleg verðmæti sem fólk treystir að muni halda verðgildi sínu (gull). Það skiptir sérstaklega miklu máli í sambandi við krónuna því ef gjaldeyrisvaraforði Íslands á næstu mánuðum verður í dollurum.... þá fáum við annað fall krónunnar ef dollarinn fellur.  Í lausafjárkreppunni hefur gull tekið nokkrar byltur og það hefur lækkað í verði gagnvart dollar síðan þessi lausafjárkreppa hófst. Orsökin er m.a. sú að bankar og seðlabankar víða um heim hafa verið að selja gullforða sína til þess að tryggja sér dollara til að borga skuldir sínar (semsagt... gríðarleg eftirspurn eftir dollurum hafði í för með sér aukið framboð á gulli þrátt fyrir að fyrirséð væri að það myndi halda gildi sínu eða hækka í verði).

Það gæti því verið lán í óláni að við heltumst snemma úr lestinni  því annars hefðum við fengið feitari skuldapakka í hausinn seinna. Það getur líka verið lán í óláni að við fáum dollara að láni því nú er dollarinn sterkur (eins og krónan var mánuðina fyrir fallið) og því um að gera að umbreyta of sterkum dollar í eitthvað sem mun halda gildi sínu.  Jafnvel ef við keyptum gull núna fyrir alla dollara sem koma inn í kassann frá lánveitendum.... og gull tvöfaldaðist í verði gagnvart dollar (dollar goes ISK) þá gætum við borgað dollaralánin á tiltölulega skömmum tíma og átt peninga til að borga aðrar skuldir.

 Reyndar hefði krónan aldrei farið svona illa út ef hún hefði verið með einhver raunveruleg verðmæti á bak við sig í bleðlabankanum...eins og t.d. gull.   Það voru náttúrulega mistök á sínum tíma þegar krónan var hvað sterkust að við sönkuðum ekki að okkur gjaldeyri.... en það þýðir ekki að gráta Björn bónda...heldur safna gulli!

Jóhannes Björn Lúðvíksson veit meira um þetta en ég og heimasíðan hans er http://vald.org  .  Mæli með þeirri síðu því maðurinn veit sínu viti. Mæli einnig með bókinni Falið Vald sem hægt er að sækja ókeypis á síðunni hans.

Öll erlend lán sem við hljótum í dollurum eiga að fara beint í að kaupa gull, annars heldur krónan áfram að vera verðlaus pappír.


mbl.is Gull gæti farið í 2.000 dali únsuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr jólasveinn

Hamza Grýluson, sem býr í fjöllunum milli Afganistan og Pakistan, er nú á leiðinni til byggða.

Greinilegt er að jólasveinarnir eiga nú að fá gamla hlutverkið sitt aftur, þ.e. að hræða börn til hlýðni við foreldra sína. Nú skal hræða almúga til hlýðni við landsforeldra sína í Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi og Danmörku. Ekki það að ekki sé fylgst nógu vel með þegnum þessara landa nú þegar, ógnin er enn til staðar og allir herir heims geta ekkert gert til að sporna við útsjónarsemi þessara klóku feðga, sem eru í senn tröll og menn.

Eigum við ekki að biðla til Álþingis og biðja landsforeldra okkar um vernd gegn þessum hættulega táningi?

Ég er ekki frá því að Hamza litli eigi eftir að vera mikið í fréttunum eftir nokkur ár. Hann fékk allaveganna góða kynningu þarna.

 

Þetta er heilaþvottur og ekkert annað.

 Ekki láta bleikja á þér heilann.


mbl.is Krónprins biður um eyðileggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til févítis með hann!

Févíti finnst mér ágætt orð.

1,3 milljónir ætti að kalla sekt. 
29,2 milljónir auk vaxta ætti hins vegar að kalla févíti.

Þá sem plötuðu þjóðina í að taka okurlán til að kaupa eignir á uppsprengdu verði á útþöndum gjaldmiðli má því með réttu kalla févita, nú eða þá fjárvita.


Sem sagt:
Fjármálamaður = Féviti eða Fjárviti
Tugilljóna lán á vöxtum = Févíti
Fara í bankann = Fara til févítis


mbl.is Févíti fyrir brot gegn ráðningarsamningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrælahald

Ég hvet alla til að lesa þennan útdrátt úr ævistarfi James DeMeo, en hann hefur gert landfræðilega úttekt á atferli fólks eftir búsetu á hnettinum.  Samfélög á þurrari svæðum (eins og t.d. eyðimörkum) eru oftar:
með eingyðistrú,
með feðraveldi,
með hefð fyrir umskurði (kk og kvk)
með hernaðarkúltúr
o.m.fl.

http://www.orgonelab.org/saharasia_en.htm 

Bókin , byggð á doktorsritgerð hans, heitir Saharasia sem kann kallar svæðið sem feðraveldið á rætur að rekja til og er þar hvað sterkast í sessi. Ýktustu og ofbeldisfyllstu feðraveldissamfélögin er að finna á svæðum Sahara eyðimerkur og í mið-asíu. Á þessu svæði eru stríð algeng, enda eru feðraveldi gjarnan herská.
Ég yrði mjög ánægður ef ég gæti talið amk. einni manneskju trú um að lesa þennan texta í dag, en ég á þó ekki von á því að nokkur lesi þetta frekar en fyrri daginn.

Vandamálið er feðraveldis-eingyðistrú sem er kerfi sem beitir aðferðum eins og  sjálfsmyndarniðurbroti, tilfinningabælingu, þrýstingi, kúgun, ótta, hótunum, áróðri, undirróðri og lygum til að halda sér í sessi og tryggja yfirráð eins hóps yfir öðrum. Drottnun karlmanna yfir konum er arfleifð stríðskúltúrs þar sem karlmönnum var hampað því þá mátti nota í hernaði. Oft er arfleifðin til staðar þó ekkert sé stríðið, t.d. hér, því feðraveldis-eingyðistrú er herská útbreiðslustefna og því eru stóru eingyðistrúarbrögðin sífellt að breiðast út um heiminn.

Konur eru viðkvæmari fyrir heilaþvotti því þær eru meiri tilfinningaverur og undirgefni hefur verið innrætt í þær í margar kynslóðir. Sjáum við því oft gamlar konur endurtaka heilaþvottinn sem þær urðu fyrir sjálfar sem börn.  Dæmi um slíkt: Prinsessusögur (boðskapur: konur eiga að vera fallegar, þægar og góðar...dæmi: Dimmalimm). Þegar ömmur kenna börnum sínum bænir er í rauninni í gangi nákvæmlega sami heilaþvotturinn og þær urðu fyrir sjálfar sem börn (þess vegna er talað um barnatrú).  Þær ætla barnabörnum sínum ekki mein því fyrir þeim er þetta eðlilegt. Hins vegar eru þau að hjálpa barnabörnunum að treysta á lygar og getgátur fremur en kunnáttu, skilning og þekkingu og í stað þess að hjálpa þeim að byggja upp nothæfa heimsmynd verður til heimsmynd byggð á sandi (sem veldur því að hægt er að stjórna því með blekkingum og lygum).

Við sjáum nútíma þrælahald í okkar samfélagi m.a. í Americas Next Top Model (brjóta niður og byggja upp þannig að lokaafurðin er sæt, undirgefin stelpa með brotna sjálfsímynd sem "eigendur" hennar geta stjórnað af vild (frægð, frami og peningar í hlutverki gulrótar)).

Annað form þrælahalds er að blekkja fólk til að skuldsetja sig upp fyrir haus og eyða næstu tugum ára í að vinna fyrir lánadrottna sína. Sama fyrirkomulag er þegar mansal á sér stað... fólki er lofað með gylliboðum um betra líf að fá að fara til annars lands, gegn því að borga flutningsgjald, sem það á náttúrulega ekki fyrir.  Þegar á staðinn er komið er þeim beint í verkamannaþrælavinnu, vændi og alls kyns ógirnileg störf.  Þess er að sjálfsögðu gætt að hafa launin ekki of há því þá geta þau borgað upp skuldina og átt sig sjálf. Fyrirtækjafasisminn sem hér er við lýði byggir á því sama og Íslendingar eru að verða að mestu vinnuölkum hins vestræna heims.

Feðraveldið er stofnun sem tryggir kúgun karlmanna yfir konum.  Flest kerfi sem við höfum á vesturlöndum tryggja yfirráð eins hóps yfir öðrum. Hjá okkur er stéttaskipting aðal vandamálið, eitthvað sem var mun minna áberandi hérna fyrir 15-20 árum, fyrir daga einkavinavæðingar og skattalækkanna til stórfyrirtækja. Lífsmynstrið í samfélögum þar sem fyrirtækjastefna (corporatism) er við lýði minna um margt á gömlu lénin, fólk hefur drottnara og þjónar þeim og hlýtur í staðinn vernd og leyfi til að búa á landi smákónganna. Stéttaskiptingin hér sem og annars staðar, er orðin eins og eins konar stofnanavæddur þrældómur.  Fólk sem er á lágmarkskaupi hefur lítinn kaupmátt og það takmarkar líf þeirra við helstu grunnþarfir eins og mat og skjól, svipað og þrælarnir í den gátu átt von á ef þeir þjónuðu drottnara sínum vel. Þrælahald er mjög raunverulegur hlutur og það er nóg af því.  Sádí Arabía er ýkt dæmi um þrælahald karla yfir konum og einnig stéttaskiptingu þar sem elítuklassinn (konungsfjöldskyldan) hefur nefnt landið eftir sér, en þetta er allt í kringum okkur.  Maður sem lemur konuna sína á sér einkaþræl því hún sækir viðurkenningu og vellíðan (s.s. jákvæðar tilfinningar) til hans, og flestir eru háðir jákvæðum tilfinningum. Hann hefur því ákveðið vald yfir henni sem veldur því að ofbeldisfullir eiginmenn eru oft varðir af fórnarlömbum sínum fram í rauðan dauðann.

Guð biblíunnar er karlkyns því karlmenn sköpuðu hann í eigin mynd. Ef einhverntímann á að draga úr feðraveldisofríki hér þarf að endurskoða grunnstoðir samfélagsins eins og þjóðkirkjuna, tungumálið (Íslenska er karllægt tungumál) og fjármála- og stjórnkerfi landsins.

Ekki trúa blint í ykkar barnatrú því þjóðkirkjan er hérlent andlit herskárrar feðraveldisstefnu sem er að taka yfir heiminn.

Ekki trúa blint í ykkar barnatrú á einkavæðingu og skattalækkanir því predikað var að þetta myndi auka jöfnuð en raunin varð sú að stéttaskipting í landinu jókst gríðarlega.


mbl.is Konum meinað að fullorðnast í Sádi-Arabíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel skipulagt apparat

Ég veit ekki með þig lesandi góður, en ég tek ekki minnsta mark á fréttum þar sem orðin Al-Qaeda, Al-Qaida etc. koma fyrir.  Ástæðan er sú að það hefur aldrei verið sannað fyrir mér að til séu skipulögð, miðstýrð hryðjuverkasamtök sem kalla sig Al-Qaeda. Sífellt er imprað á Íraks-armi samtakanna sem vilji sprengja allt í tætlur (vegna þess að hryðjuverkamenn vilja sprengja hluti) og nú heyri ég fyrst um Norður-Afríkuarm samtakanna. Ég man eftir einum svokölluðum foringja "Íraksarmsins" sem eignaðar voru allflestar mannskæðar sprengingar sem áttu sér stað í Írak (að Shock&Awe/Blitzkrieg bombum "okkar" undanskildum) á vissu tímabili.  Þessi grýla hét Al-Zarqawi og hafði ekki undan við að skipuleggja sprengingar víðsvegar um landið.  Þessi maður átti að vera sá hættulegasti í heimi á eftir Osama, var mikið í fréttum, og skaut upp höfðinu hér og þar, m.a. til að skera hausinn af Bandarískum friðarsinna, svo fátt eitt megi telja..........AÐ SÖGN!.  Það leið varla sá dagur að Zarqawi (sem var mjög þversagnakenndur maður) gerði einhvern skandal.  Ég fékk það fljótt á tilfinninguna eftir að hann kom til sögunnar að honum væru eignaðar mun fleiri sprengingar en hann gæti nokkurn tímann hafa sett fingurna í.

Og svo er okkur sagt að Al-Qaeda standi á bak við allt saman.

Rétt eins og Grýla var notuð til að halda börnum hræddum
og jólasveinarnir  í dag til að halda börnum þægum (annars kartafla í skó)
og prinsessusögur til að halda litlum stúlkum þægum og góðum
og Gosi til að halda litlum krökkum sannsöglum
og Guð til að halda fólki (guð)hræddu svo það láti auðveldar að stjórn (því Guð sér allt!) 
og Guð til að innræta sektarkennd í fólk með náttúrulegar hvatir
svo fátt eitt megi telja; þá er Al-Queda notað á vesturlöndum til þess að halda okkur (þó sérstaklega bandarískum almenningi) hræddum. Al-Queda er grýla og rétt eins og með hana Grýlu okkar jólasveinamóður....þá vantar mig ennþá sannanir til þess að trúa öllum þessum sögusögnum um hana, eða þá hvort hún sé á annað borð til.


mbl.is Al-Qaeda á bakvið árásirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir sem reykja neyta fíkniefna

Nikótín veldur líkamlegri fíkn og verður því að teljast fíkniefni. Orðið 'fíkniefni' er gríðarlega vítt hugtak og segir þessi fyrirsögn sama og ekki neitt. Mér finnst að blaðamenn ættu að fara að taka sig á og læra hvað orðið fíkniefni þýðir því þeirra vankunnátta á hugtökunum fíkn og fíkniefni smitast út í samfélagið.

Mig langaði bara að benda á hversu óhnitmiðað orðavalið er í fyrirsögn þessarar fréttar.


mbl.is Flestir þeirra sem smitast af lifrarbólgu B neyta fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bushama

Er eitthvad til sem heitir hlutlaus fréttamennska?

Í naestum sex ár hefur fólk um alla jörd velt thví fyrir sér hvort Osama sé enn á lífi og hvort hann sé í raun og veru sá sem stjórnar hinum "althjódlegu hrydjuverkasamtökum" sem s.k. fréttamidlar, m.a. áródursthýdingarthjónustan, kalla Al-Qaeda.

Ég fyrir mitt leyti hef ekki ennthá séd neitt sem á annad bord sannar (sannanir eru mikilvaegar thegar kemur ad thví ad fullyrda) ad thad sé til eitthvad midstýrt apparat sem heitir Al-Qaeda. Mér finnst mjög skrýtid ad thessi mastermaend sem Binni skal vera skuli hafa getad skipulagt rán á fjórum farthegaflugvélum í áaetlunarflugi en um leid geti hann ekki sannad tilvist sína sem lifandi hrydjuverkaleidtogi, thrátt fyrir ad "hann" vilji vera mikilvaeg rödd i thessari veröld. Einnig er lítid mál fyrir manninn ad naela sér í fjórar farthegaflugvélar, en madurinn á samt í stökustu vandraedum med ad ná sér í almennilega myndbandsupptökuvél. Annars virdist hann fremur kjósa ad búa til hljódupptökur, einhverra hluta vegna.  Einnig finnst mér thad merkilegt ad madurinn skuli alltaf tímasetja tilkynningar sínar thannig ad thad henti Bush og félögum sem best. Skemmst er ad minnast thess thegar hann gaf út studningsmyndband (gagnrýni Osama á Bush rétt fyrir kosningar = studningur stórs hlutfalls bandarísku thjódarinnar vid Bush) vid Bush stjórnina rétt fyrir kosningar, sem voru stolnar audvitad. Ef madurinn stelur einum kosningum er hann búinn ad útiloka möguleika sínum á löglegum sigri í theim naestu. Á thad ad vera eitthvad vafamál?

Dagsetningin 11. september 2007, 6 árum eftir thennan vidburdaríka dag kann líka ad thykja einkennileg. Af hverju velur hann 6 ára afmaelid? Hvad er svona merkilegt vid 6 ára afmaeli? Netsídur "íslamista" finnst mér hlaegilegt hugtak, thad virdist vera ad thessir "íslamistar" hafi thad eitt ad markmidi ad styrkja núverandi stjórnvöld BNA í sessi. Ennfremur thykir mér skrýtid ad "erkióvinur Bush" velji thessa dagsetningu. Nú aetla ég ekki ad koma med neinar yfirlýsingar um thad hver bar ábyrgd á thessu rugli öllu saman en ég veit samt ad sama dag verdur gefid út myndband, Loose Change - Final Cut, thar sem markmidid er ad bendla "erkióvini Osama" vid áflugin thann ellefta sept. 2001 og vonast their til ad sanna thad thá í eitt skiptid fyrir öll, thví flestir geta verid sammála um ad ekki séu öll kurl komin til grafar í thessu máli. Ég myndi thví halda ad thad vaeri mastermaendinum Osama í hag ad halda sig til hlés thennan dag, sérstaklega í ljósi thess ad hann hefdi fengid meira en hann hefdi bedid um ef Bush og félagar vaeru sakadir um ad hafa átt hlut í máli, jafnvel thótt their vaeru saklausir.  Tharna sjáum vid ad Osama hefur ákvedid ad taka ad sér ad vera verjandi Bush stjórnarinnar í thessu máli, nema thá ad Bush stjórnin leggi honum ord í munn, eda ad hann hafi afar takmarkad adgengi ad upplýsingum og viti ekki til thess ad stórt hlutfall jardarbúa trúi thví ekki ad Osama sjálfur hafi skipulagt glaepaverkin. Takmarkad upplýsingaflaedi aetti reyndar ekki ad thykja óvenjulegt ef thú ert hellisbúi, en förum ekki nánar út í thad.

Mér finnst thad einnig undarlegt hversu duglegur Osama er ad koma Bush til hjálpar thegar allt stefnir í óefni hjá honum. Gaeti kannski verid ad Osama sé ekki sá sem leggur Osama ord i munn? Hvers vegna er leynithjónusta BNA alltaf svona fljót ad lýsa thví yfir ad yfirlýsingar myndbandsupptökuvélalausa mannsins séu ekta? Hvernig fá their thad út? Hvad graeda their á thví ad lýsa thví yfir ad upptakan sé af rödd Osama um leid og fréttist af tilvist hennar?

Hver man ekki (reyndar margir) eftir myndbandinum thegar "Osama" taladi um thad ad hann vaeri ábyrgur fyrir árásunum thann ellefta? Undarlegt er thó ad sá sem lýsti árásunum á hendur sér á myndbandinu, sem var í verri gaedum en myndböndin hjá 30 thúsund krónu ljósmyndavélininni minni, var breidnefur medan Osama er/var mjónefur. Thótt skegglitur sé audbreytanlegur milli myndbandsupptaka thá er erfidara ad láta breikka á sér nefid. Svo er Osama ennthá í sömu fötunum eftir a.m.k. thrjú ár, djöfull hlýtur madurinn ad vera farinn ad lykta illa.

breidnefurinn
Sýnist mér sem Osama sé eitt beittasta vopnid sem "óvinir" hans búa yfir. Hvers vegna?

Ég setti líka AP skrifin um málid í kommentakerfid svo fólk geti fengid áródurinn óthýddan beint í aed.


mbl.is Bin Laden sagður ætla að ávarpa bandarísku þjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband